AGP Picks
View all

Staða á flutningi frá AIM yfir á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London

Reykjavík, July 03, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) --

Staða á flutningi frá AIM yfir á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London

Amaroq Ltd. (AIM, NASDAQ Iceland: AMRQ, OTCQX: AMRQF), tilkynnir um framvindu á áformum félagsins um skráningu hlutabréfa þess í ESCC-flokk (e. Equity Shares Commercial Companies) á opinberum lista breska fjármálaeftirlitsins (e. FCA) og töku bréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar í London.

Skráningin er háð samþykki breska fjármálaeftirlitsins á skráningarlýsingu félagsins, samþykki þess fyrir skráningu hlutabréfanna í ESCC-flokk opinbera listans sem og samþykki Kauphallarinnar í London á töku hlutabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaðnum. Að þessum skilyrðum uppfylltum er gert ráð fyrir að skráningin taki gildi í fyrsta lagi 31. júlí 2026.

Í samræmi við reglu 41 í reglum AIM fyrir útgefendur tilkynnir félagið jafnframt að það hyggst afskrá hlutabréf sín af AIM-markaðnum. Gert er ráð fyrir að afskráningin fari fram samhliða skráningu á Aðalmarkaðinn.

Skráning bréfanna á Aðalmarkaðinn er ekki háð samþykki hluthafa. Vakin er athygli hluthafa á því að við gildistöku skráningarinnar verða hlutabréf félagsins ekki lengur í viðskiptum á AIM, og eru hluthafar hvattir til að leita sér ráðgjafar ef spurningar vakna um áhrif skráningarinnar.

Félagið hyggst hvorki afla nýs hlutafjár né gefa út ný verðbréf í tengslum við skráninguna. Gert er ráð fyrir að skráningin verði framkvæmd með flutningi þeirra hlutabréfa sem þegar hafa verið gefin út og eru í dag skráð á AIM-markaðinn.

Félagið mun birta frekari upplýsingar eftir því við á.

Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq:

Við höfum náð mikilvægum áföngum í rekstri á síðustu misserum og styrkt stöðu félagsins til langtímavaxtar. Áform okkar um skráningu á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London endurspeglar bæði þann árangur sem við höfum náð og ekki síður þá trú sem við höfum á framtíð félagsins. Við erum sannfærð um að skráningin muni auka sýnileika félagsins á fjármagnsmörkuðum, bæta aðgengi að breiðari hópi fagfjárfesta og styrkja enn frekar grundvöll okkar til að hrinda vaxtaráætlunum okkar í framkvæmd.“

Fyrirspurnir:


Amaroq Ltd. C/O
Ed Westropp, Chief Corporate Development and Strategy Officer
+44 (0)7385 755711
ewe@amaroqminerals.com

Citigroup Global Markets Limited (Corporate Broker)
Andrew Miller-Jones
David Herring
+44 (0) 207 986 3463

Panmure Liberum Limited (Nominated Adviser and Corporate Broker)
Scott Mathieson
Piers Shimwell
+44 (0) 20 7886 2500

Canaccord Genuity Limited (Corporate Broker)
James Asensio
Rory Blundell
Harry Rees
+44 (0) 20 7523 8000

Camarco (Financial PR)
Elfie Kent
Fergus Young 
+44 (0) 20 3757 4980

Fyrirvari:

Þessi tilkynning er eingöngu birt í upplýsingaskyni og felur hvorki í sér tilboð um sölu eða útgáfu né áskorun um kaup, áskrift eða aðra öflun hlutabréfa í Amaroq Ltd. í nokkru lögsagnarumdæmi.

Þessi tilkynning er birt á íslensku og ensku. Komi upp misræmi milli tilkynninganna skal enska útgáfan gilda.

Further Information:

About Amaroq

Amaroq’s principal business objectives are the identification, acquisition, exploration, and development of gold and strategic metal properties in South Greenland. The Company’s principal asset is a 100% interest in the Nalunaq Gold mine. The Company has a portfolio of gold and strategic metal assets in Southern Greenland covering the two known gold belts in the region as well as advanced exploration projects at Stendalen and the Sava Copper Belt exploring for Strategic metals such as Copper, Nickel, Rare Earths and other minerals. Amaroq is continued under the Business Corporations Act (Ontario) and wholly owns Nalunaq A/S, incorporated under the Greenland Companies Act.


Primary Logo

Legal Disclaimer:

EIN Presswire provides this news content "as is" without warranty of any kind. We do not accept any responsibility or liability for the accuracy, content, images, videos, licenses, completeness, legality, or reliability of the information contained in this article. If you have any complaints or copyright issues related to this article, kindly contact the author above.

Share this page:

Advanced Search Options

Search for:

Search scope:

Type:

Search in:

Date range:

The last

Sort by:

Sign up for:

Africa Daily Journal

The daily local news briefing you can trust. Every day. Subscribe now.

By signing up, you agree to our Terms & Conditions.